Aðalvalmynd

dk 10

10. maí 2008 klukkan 07:44


21ns árs í dag..

Ég
Á
Nefnilega
Afmæli
Sko.

dk 9

08. maí 2008 klukkan 21:18
það er svo sexy í dk núna.
sól og mellublíða.
mellublíða - þá erum við að tala um svona blíðu sem að fær allar stelpur til að breytast í mellur og fara úr fötunum..

á laugardaginn á ég afmæli og í tilefni þess ætlum við að fara yfir í bæ hérna rétt hjá sem heitir Saxils og fara á ströndina þar sem er víst geggjað næs. Bryndís var að vinna þar einu sinni eitt sumar og hún segir að það sé bara mega að vera þar.
vá, ég held að það verði alveg frábært.

HEY frábærar fréttir!
ég toppaði persónulegt met í dag, hljóp 5 kílómetra á 22 mínútum.

æji afhverju geta ekki allir vinir mínir heima á íslandi flutt til danmerkur. i'm in love.

þá er ég ekki að meina in love af strák, heldur af þessu landi.
en jú ég er víst líka in love af dönskum strák. það hefur kannski smá extra áhrif.
maður getur verið svo heimskur sko... strákar eru eitur. eitur í æð og eitur í heila.

ég nenni ekki að skrifa meira ég er svo þreytt og sólbrunnin og dösuð og glöð og hamingjusöm og mylguð og úldin og falleg og búin á því. fokk ég á eftir að sofa vel!

vonandi áttu allir jafn góðan og áhyggjulausan dag og ég.
njótiði lífsins og grípiði hvert einasta andartak.

bless mellur.

dk 8

09. apríl 2008 klukkan 23:01
.. spurjiði mig hvort að ég hafi verið að gera eitthvað geðveikt fyrir viku?
Það gerði ég nefnilega. Fórum á:

Trentemøller

og það var eins og sykursæt, kynþokkafull fullnæging við hvern einasta takt. enda missti ég stjórn á mér á algjörum hápunkti kvöldsins, þegar hann spilaði útgáfu af Rykketid sem fékk mig til að hoppa upp á svið, og þegar brjálaði kaflinn kom, missti ég mig enn frekar og hoppaði frá sviðinu upp á DJ borðið hans, með þúsund manns fyrir framan mig öskrandi og hoppandi og dansandi í neongrænum og bláum leiserljósum og blikkandi brjálæði. segiði mér að ég sé kolbrjálaður geðsjúklingur, en það var fokking besta stund lífs míns.. Trentarinn var að fíla sinn brjáðasta aðdáanda. (tek einnig fram að ég var líklegast mest edrú manneskjan á svæðinu..)

trentemoller

þarna er ég, með Trentemelluna á milli lappanna að vinna sína vinnu.



á morgun fer ég til Kaupmannahafnar, Kastrup Lufthavn, að sækja foreldra mína og litlu systir mína sem er með hlaupabóluna greyjið. það verður yndislegt að hitta þau..

gott líf.

dk 8

24. mars 2008 klukkan 19:25
ef thid haldid ad lif mitt se spennandi tha, (komma a vitlausum stad) er thad thad ekki.
eg hef ekkert gert i minu paskafrii nema.. thykjast fara i ræktina, thykjast hanga upp i sofa/rumi, thykjast djamma smá og thykjast stunda kynlif med bangsa. en eg thykist bara afthvi ad hver er virkilega raunverulegur i thessu lifî? ekki eg.

eg verd ad vidurkenna ad i einmannaleika minum herna sakna eg mommu og pabba, og johonnu litlu systur minnar sem er alltaf til i ad koma ad gera eitthvad med mer. en einmannaleikinn getur verid godur, serstaklega ef madur er einmanna med godu folki.

(ég nenni stundum ad gera kommu yfir thegar vid á. stundum ekki.)

en thad var agætt ad hafa thad rolegt eftir brjalada ferdaviku, thar sem eg for til hollands og thyskalands. svo komu allir heim ....... og svo voru themadagar ....  og svo var frí. eg sendi anitu einu alvoru islensku vinkonu minni postkort fra hollandi. en framan a thvi var belja ad pissa. svoldid fyndid.

timinn flygur eins og smjor ofan a braudi og thad er ekkert sem eg get gert til ad stoppa hann. nuna er eg ad bida .... bida eftir thvi ad klukkan verdi 20:30, afthvi ad tha er eg ad fara i BodyAttack. thar sem eg mun taka flott skref og hlaupa um, gera hundrad armbeygjur og magaæfingar i takt vid tonlist og fleira mergjad. gott ad koma brennslunni i gang eftir paskaeggjaát .. nenni ekki ad tala um thetta meir.

a dofinni er ekkert.. nema nidurgangur og drulla.
eg finn mengunarlyktina nalgast..

land min og thjod.. thid megid ganga i fridi a islenskri jordu - thad fer ad styttast i komu mina.
HELMINGSTÌD TIL BAKA. sorry thetta var ógedslega danskt sagt.

dk 7

07. mars 2008 klukkan 16:56
Hold da kæft. Hvad sker der!?
Ég er barasta á leiðinni til Hollands í æfingaferð! Hvernig lýst ykkur á það? Legg af stað klukkan eitt í nótt, með rútu. Woohoo! Enn eitt rútuævintýrið. Í þetta skipti ætla ég ekki að klikka á að taka fartölvuna með!

Það er sem sagt svona "Rejseuge" (Ferðavika) í næstu viku og verður farið í fjórar mismunandi ferðir.

  • Fótboltinn fer til Hollands
  • Handboltinn fer til Þýskalands
  • Útivistar- og Ævintýralínan fer til Noregs að byggja snjóhús.
  • Dansakademían fer til Londons (og þeir sem stunda ekki neitt af þessum íþróttagreinum, þeir fara þangað líka bara sem túristar)

Við komum reyndar aðeins við í Þýskalandi á morgun og sjáum einhvern flottann fótboltaleik. Og svo förum við til Holló. Og þar gistum við á einhverju hóteli og svo verða bara tvær æfingar á dag og brjálað að gera.

Fáum svo einn heilan dag útaf fyrir okkur sem túristar í Amsterdam! Flott, ekki satt? Geggjað! Það eru langflottustu krakkarnir í skólanum sem æfa fótbolta, þannig að félagsskapurinn verður ekki af verri endanum.

Til dæmis Helle. Við ætlum nefnilega að vera Busvinkonur og herbergisfélagar á hótelinu! Það er langt síðan við ákváðum það og enn stenst það sína tönn.



Annars er allt gott að frétta bara. Ég hef það gott og ég hata það hvað tíminn líður hratt.. Langar minna en núll og nix heim til Íslands. Litla systir mín á afmæli eftir fjóra daga. Ég sendi henni gjöf, ótrúlega sætann og sumarlegan kjól og hárband.

Nennir einhver sem þekkir mig að kaupa páskaegg handa mér og senda mér? Svona Nóa Síríus? Mamma, ef þú ert að lesa.. endilega! Plögga þessu fyrir mig. Ég nenni ekki að eyða páskunum einmanna hérna í skólanum með ekkert páskaegg mér við hlið.

mm.. Það er mexíkanskur matur í matinn í kvöld. NAMM. Vona að það verði eitthvað sexy..

Bráðum verður Gensynsfest (reunion) hérna í skólanum.. GUUUUUUÐ. Det bliver HELT VILDT! Þá koma allir nemendurnir sem voru hérna á síðutu önn og fokk það verður bara svo geggjað. Þá erum við að tala um snillinga eins og hana Jógu Rafns og fleiri góða íslendinga.. 

En fokk það eru 4 mín. í mat!
Verð að þjóta.

dk 6

18. febrúar 2008 klukkan 15:07
lífið er bara Brosandi ...
og svo er það sagt!

dk 5

04. febrúar 2008 klukkan 11:53
jæja þá er ég komin heim úr bestu (og einu) skíðaferð lífs míns.
það var svo þokkalega gaman þarna í Austurríki.. vorum á skíðasvæði sem kallast Scheffau og það var bara klikkað, alveg æðislegt sko. datt ekki í hug að þetta yrði svona fallegt ferðalag og skemmtileg lífsreynsla eftir allt saman.

í lítilli diskalyftu

frábært veður eigilega allan tímann, sól og mega allaveganna 3 daga. ég er ekki frá því að maður hafi fengið smá tan í smettið. einn daginn var reyndar brjálaður stormur upp í fjalli og rigning og allt lokað og læst. einn daginn var svo gott að strákarnir renndu sér eina ferð niður berir af ofan!

atli ber að ofan

ég var alveg að fíla mig í ræmur þarna á skíðunum, þorði niður allar bröttustu brekkurnar og í púðrið og allt. ég var ekki hrædd við neitt nema kannski að deyja stundum þegar ég fór allt of hratt. missti allt control og flaug næstum því á fólkið sem beið í röðum eftir lyftu. nei djók, ég var alltaf með control á þessu og datt ekki nema kannski svona 3svar sinnum og aldrei neitt illa. einu sinni þegar ég var að fara á stökkpall hehe..

flippuð

ég var alltaf að skíða með brjáluðu liði. ef ég var ekki að skíða með brjáluðu liði fannst mér líka leiðilegt. þá var ég bara eitthvað halló, ég nenni ekki að bíða! ég vil fara hratt! ég þurfti líka að skipta um hóp í kennslu afþví að ég var sett með byrjendum! var bara eitthvað að læra að fara í plóg og eitthvað þar. halló?

halló! ég er góð!

þetta var sko alveg hjúts svæði.. maður fór upp í svona kljáf, sem er svona lokaður klefi sem fer upp eftir þykkum vír, svona eins og maður sér í bíómyndunum og þegar maður var kominn upp á topp þá gat maður farið bara óteljandi leiðir og í hundrað mismunandi lyftur um risastórt svæði sem teygðist yfir í næstu nærliggjandi bæi.

enda villtumst við einu sinni og enduðum allt í einu á einhverju lamadýra bæli einhversstaðar nálægt öðru þorpi. en það var bara fjör og þegar við loksins komumst aftur á okkar skíðasvæði aftur, þá var akkúrat ein mínúta eftir að lyfturnar lokuðu, þannig að við vorum sjúklega heppin. hefðum sko getað dáið þarna alein.

lamadýr í góðu fjöri!

eftir einn dag þarna var maður svo búinn á því. lærin voru bara "ó mæ gad lilja hvað ertu búin að gera mér?" og kálfarnir voru bara "vá hvað við erum harðir og aumir"..

svo inn á milli settumst við niður í hópum á einhvern veitingastaðinn og borðuðum og drukkum heitt kakó. gátum setið og spjallað og hlegið og kúrað og haft það huggulegt tímana saman. ohh það var svo næs.

og ég er svo öfundsjúk út í krakkana sem eru á skíðalínunni, þau eru aðra extra viku. þar á meðal er það Kristen, sem er ennþá þarna að skíða með typpið upp í loftið og punginn lafandi í skíðabuxunum. eða "skidebukserne" sem stefanía kallaði óvart.. sem hefur auðvitað ekki sömu þýðingu á dönsku!

en jæja, ég verð eigilega að fara, það er fótboltaæfing eftir 8 mínútur.
bæbæ!

du skal virkelig pas på dig selv!
komment eru vel þegin :)

dk 4

23. janúar 2008 klukkan 22:59

Helle: Er du god til at stå på ski?
Lilja: Nej, men det er rigtig sjovt synes jeg!
Sebastian: Haha.
Lilja: Hvad? Er det ikke hvad det handler om? Behöver man at være god?
Helle: Neeeej.

Lilja: Helle, hvad med dig, er du god til at stå på ski?
Helle: JA.
Lilja: OKAY! er du?
Helle: Haha Nej det er jeg ikke! Haha.. Så kigger du bara: "Er du? Det kan jeg ikke forestille mig."
Lilja: HAHA Jo det kan jeg godt forestille mig.

en já við erum sem sagt að fara í skíðaferð til austurríkis á föstudaginn!
hversu frábært er það? get reyndar ekki ímyndað mér að ferðalagið verði skemmtilegt! við þurfum nefnilega að sitja í rútu í 17 tíma. FRÁBÆRT, ekki satt?
ég er komin með busven, en það er hún stefanía. og ætlum að hafa með okkur spil, nóga af nammi, ipoda, teppi, kodda .. og þá verður þetta besta busferð lífs okkar.



í kvöld vorum við með svona keppni. mér leið eins og ég væri komin í grunnskólann aftur, lék leikrit og söng lag upp á sviði og svona ýmislegt. en það var ógeðslega gaman og mitt lið að sjálfsögðu fékk flestu stigin! djöfull er ég í góðu liði maður.

en jæja ég er orðin þreyttari en sofandi mellla.
ætla að fara að lúlla.


hugsanir snúast í hringi.
í hausnum á mér.
ég get ekki sloppið frá þeim.
þær stjórna því hver ég er.

ég ligg hér ein og hugsa.
ég vil ekki falla í svefn.
afþví að ei vil ég vakna.
án þín hér við hliðina á mér.

eru fingur mínir kaldir,
má ég koma við þig?
ég þarfnast einhvers núna.
einhvers sem að þekkir mig.

lífið er erfitt, mig verkjar.
ég sé ekki tilganginn.
en þegar ég heyri þig hlæja.
hverfur allt það sem hrjáir mig.

dk 3

21. janúar 2008 klukkan 11:53
jeje.. helgin yfirstaðin!

fín helgi í alla staði. voru ýmsir weekend kursusar í boði fyrir okkur krakkana, en ég og kristen skráðum okkur í handicap idræt, eða íþróttir fyrir fatlaða réttara sagt. og það var bara gaman! á föstudeginum spiluðum við blindrabolta, hjólastólakörfubolta og margt fleira skemmtilegt. um kvöldið fórum við svo að keppa við þroskahefta í bandí! haha.. það var geðveikt. enn seinna um kvöldið, eftir að við vorum búin að horfa á handboltann, fór ég svo saman með helling af liði úr skólanum í diskókeilu og fokk þið getið ekki ímyndað ykkur hversu léleg ég er í keilu. vá.. ég kann ekki einu sinni að halda á kúlunni og kastaði henni vitlaust eigilega allan tímann!

á laugardeginum voru svo meiri íþróttir fyrir fatlaða og við kláruðum þann kafla í lífi okkar. svo fór ég með Per, Anne, Jesper og Kristen í Veri Center og þau versluðu sér áfengi fyrir kvöldið, en ég var bara eitthvað að elta þau og kaupa mér eitthvað annað. svo klukkan 18:00 var ég mætt niðrá Valhalla (veitingastaður) með Íslendingum, Helle, Morten og Chris. en þar vorum við að fagna afmæli Péturs saman, með því að borða góðan mat og drekka góða drykki. helvíti fínt! síðan komum við í skólann aftur vel tipsy (æji ekki ég samt, þið vitið það alveg) og klár í partý. og svo var djammað.

klukkan 2 var ég svo farin inn í herbergi á trúnó með ciaran. flott trúnó, ciaran þú stendur þig vel. það er margt sem veltur um í hausnum á mér þessa dagana nefnilega. svo kom kristen inn til mín og við sváfum.. eða hann drapst og ég fór að sofa zzZZzzZzzzzzzz.

í gær var svo bara ... rólegt. ég gerði ekkert merkilegt. þreif kaffið með stelpunum og fór "út að borða" með ciaran, eða við fórum og fengum okkur rúllukebab í Veri. chillaði svo um kvöldið í tv stofunni með kristen.. kristen fokkfeis.

en ég er að verða sein á æfingu.
bæbæbæ!

dk 2

17. janúar 2008 klukkan 17:01
ég var á fótboltaæfingu í morgun, númer 2. það var súper gaman. fyrst hitaði ég upp með hera vini mínum frá færeyjum og svo spiluðum við stelpurnar 7 manna bolta. það var geðveikt gaman.

síðan var hádegismatur og ég borðaði danskt rúgbrauð með roastbeaf, remolaði og steiktum lauk. og smá núðlur. NAMM.

síðan fór ég í film, og horfði á myndina Crash. það var fínt. ágætismynd.

síðan fór ég á kaffihús með helle, lise, bettinu, anne og maj og við sátum og drukkum kaffi, ískaffi, kakó, smoothie.. vorum allar með eitthvað misjafnt. baresso er besta kaffihús í heimi! og við ræddum og slúðruðum. ég hlustaði samt aðallega og var sammála, afþví að ég tala ekki alveg jafn hraða dönsku og þær og svo er ég aldrei inní málunum í kringum mig, i'm always the last to know! stundum kom ég með inn í: "ha... HVEM?" eða eitthvað álíka ef ég missti af því um hvern væri að ræða.

svo á leiðinni heim ræddi ég alvarlega við helle og anne (hinar stelpurnar urðu eftir í bænum) og þá fékk ég loksins að tjá mig! finally komst ég á trúnó! danskt trúnó. er búin að vera að veltast um andvaka bara afþví að ég hef enga bestu vinkonu hérna til að tjá mig við.

en eyrún kemur eftir 22 daga.. fokk ég get bara ekki beðið sko! það verður svo súper feitt. þá get ég alltaf farið til hennar og sagt: "Eyrún ég þarf að kúka" og prumpað framan í hana.

ég heng samt voða mikið með kærastanum hennar eyrúnar, honum Ciaran og hann er sko engin pempía, í kringum hann get ég ropað og rekið við. og svo heng ég líka með mínum strák (my boy) Kristen - hann er ekki kærastinn minn, ég held að hann vilji skoða nýju stelpurnar áður enn hann neglir sig við mig. jájá hann má skoða stelpurnar en ég veit hvert hann kemur í endann! til mín! djók ein ógeðslega confident með sjálfa sig. og svo eru það ég og helle! við erum sko saman í ÖLLU: fótbolta, blaki, sang og sangskrivning, film, teami.. allt! og svo ætlum við líka að vera saman í herbergi þegar við förum til Amsterdam í fótboltaferðalag!! aaaahhh hversu geðveikt verður það? ha? helle er bara ein flottasta stelpa sem ég hef kynnst, shit hvað hún er cool. hún minnir mig á jógu sem ég sakna meira en röv :(

andreas frá ástralíu kemur ekki í skólann aftur, sem er mjög leiðilegt fyrir bettinu kærustuna hans og vinkonu mína, en ég er eigilega bara ánægð! kennararnir bönnuðu honum að koma afþví að hann var ekki nógu góður nemandi síðast. enda var hann alltaf fullasti maðurinn á svæðinu og mætti alltaf of seint á æfingar, það er að segja þegar hann mætti.

astrid er í efa um að koma, hún er óákveðin manneskja. fyrir mína parta, vona ég að hún komi ekki afþví að við eigum okkar deilur..

ég er að reyna að finna mér vinnu hérna í þessum blessaða skóla.. gengur ekkert eitthvað súpervel! það er allt fullt í eldhúsinu.. en ég vonandi redda þessu einhvernvegin.

jæja núna fer að líða af kvöldmat..
núna vitiði hvernig lífið er hérna í århus.
ég er mjög hamingjusöm og er pottþétt á að þetta verði súper feitt hérna.

vi ses til aftensmad!

PS:
ekki núna um helgina, heldur næstu fer ég til Austurríkis! í skíðaferð, yeah!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

sexy ..

Prófíll

  • Nafn: Lilja Minný Sigurbjörnsdóttir
  • Kennitala: 100587-2629
  • Netfang: liljaminny@hotmail.com
  • Staður: Sigló / Århus
  • Símanúmer: 8660647
  • Atvinna: Íþróttaiðkandi nemandi
  • Hjúskaparstaða: Ekkert í gangi