Aðalvalmynd

sigló 2

07. júlí 2008 klukkan 09:44

Góðan daginn.

 

Jæja! Þá er Hróaskelda búin, þá getur mér hætt að langa að fara og ég get byrjað að hlakka til næstu (afþví að þá ætla ég )! Verður hvort sem er örugglega betri dagskrá með betri hljómsveitum – Jafnvel þó að ég hafi misst af Mike Skinner (The Streets), Familjen og Slagsmålsklubben í ár! Ef einhver vill koma með mér á næsta ári er hann velkominn.

 

Ég finn fyrir svo mikilli útlandaþörf í augnablikinu. Mig langar bara að fara eitthvað heitt og gott með góðri vinkonu, liggja í sólbaði á milli þess sem ég fer á næturklúbba að dansa, eins og enginn sé morgundagurinn. Mig langar til Sunny Beach (Búlgaríu), þar sem er falleg strönd með dökkum, hálfnöktum, snoðuðum, tattooveruðum drengandskotum, þar sem allt er feik, mega ódýrt, rússneskir mafíósar keyra um götur á flottum bílum og nýjasta klúbba-house tónlistin er pumpandi úr hverjum hátalara í bænum, á daginn, á nóttunni, á hvaða tíma sem er. Mig langar að fara til Bandaríkjanna að skoða New York, LA og Miami og versla, Ástralíu að heilsa upp á kengúrur og krókódíla. Mig langar til Danmerkur í heimsókn til Kristens og Maj og Helle og allra sem maður þekkir þar. Mig langar eigilega svona beisikallí bara eitthvert! En ég er bundin við vinnu og á ekki beint peninga til að fleygja hingað og þangað.

 

En ekki misskilja mig, ég elska að vera hérna heima á Íslandi og ég er glöð að vera komin heim aftur. Það er líka geðveikt gaman hérna heima! Á meðan maður er frjáls og getur gert það sem maður vill án þess að vera háður einu né neinu!

 

Ég fór út að hlaupa í gær. Djöfull var það geggjað! Það verður aldrei þreytt að fara út að hlaupa og ég gæti gert það á hverjum einasta degi. Ef það er batterí á ipodinum, þá er ég game, hvenær sem er, hvar sem er. Svo er ég náttúrulega líka alltaf í Body Attack. Body Attackers have rythm. Það er einmitt líka alveg geðveikt í því! Mæli með því! Ég væri sko til í að kenna öllum það!

 

Ég komst inn í HÍ (eða KHÍ einsog ég held að það heiti núna), íþrótta- og heilsufræði á Laugarvatni (aðeins 93 kílómetrum frá Reykjavík). Ég var ekkert eitthvað geðveikt spennt fyrir að fara, fyrr en ég fékk að vita það að ég komst inn. Þá myndaðist brjáluð spenna fyrir þessu öllu saman. Og ég varð ennþá spenntari þegar ég komst að því að tveir þriðju af nemendum skólans verða strákar! I love boys. Náttúrulega. Eins og við stelpur gerum (nema the gay ones). Og ef maður er að fara í háskóla, þá þarf maður að kaupa sér nýja fartölvu og jafnvel fá sér nýjan bíl! - Þannig að það er allt gott um þetta að segja!

 

Annars er bara búið að vera nóg að gera síðan ég kom heim. Að sjálfsögðu er það vinnan í sundlauginni, þar sem tveir nýjir starfsmenn eru byrjaðir, hann Óli Darri og Villi. Pabbi minn varð 50tugur (sem turned out to be geðveikt djamm má maður segja), og ég er búin að vera að hanga mjög mikið með Esther frænku og Guðmund Orra, gisti hjá þeim á Ólafsfirði einu sinni. Ég og Aníta erum búnar að vera að grilla í útlendingum sem að koma til Siglufjarðar og Hanna Guðrún er komin aftur á klakann, eftir að hafa verið Au Pair í Skotlandi. Ég var á ættarmóti um helgina, og gisti í tjaldi. Næstu helgi er svo árgangsmót, þar sem við ’87 fólkið ætlum að hittast og gera eitthvað gaman gaman. Eyrún Guðmundsdóttir ætlar að koma og gista hjá mér. Sem ég er mjög spennt yfir afþví að ég sakna hennar alveg heaps and loads!

 

BlesSssSsss!

sigló

03. júní 2008 klukkan 13:55
jæja þá er ég komin aftur til íslands. velkomin ég. takk ég.
það er yndislegt að koma heim. heim á sigló. þar sem maður á alltaf heima.

á siglufirði hafa margar breytingar átt sér stað. ég sem hélt að ekkert myndi breytast. sem dæmi má nefna:

búið að byggja við sjúkrahúsið. helvíti flott maður.
videoval hefur flutt sit setur. og það er hægt að kaupa Ben&Jerry's ís þar.
nýjir eigendur á Pizza 67.
heima hjá mér er neðri hæðin aldeilis að komast í stand.
heima hjá ömmu minni er komið nýtt bað.
ásamt mörgu fleira sem maður hefur heyrt af.

ég er bara byrjuð að vinna í sundlauginni eins og enginn sé morgundagurinn. en það er afskaplega rólegt. það er nefnilega verið að gera við loftið fyrir ofan laugina, þannig að það eina sem er opið er í heita pottinn, ræktina og í ljósalampanna.

næs.

mér líður ekkert eins og sumarið sé rétt að byrja. það byrjaði eigilega hjá mér í apríl, þegar ég var að striplast um á bikiní útí garði.

gaur ég og bryndís

þannig að mér finnst mjög fatlað að það sé bara eitthvað nýbyrjaður júní núna. en ætli ég eigi ekki bara eftir að aðlaðast íslenskum tíma og árstíðum. en to tre nu.

flipp

jæja ég er farin!
sexynezz.

dk 10

10. maí 2008 klukkan 07:44


21ns árs í dag..

Ég
Á
Nefnilega
Afmæli
Sko.

dk 9

08. maí 2008 klukkan 21:18
það er svo sexy í dk núna.
sól og mellublíða.
mellublíða - þá erum við að tala um svona blíðu sem að fær allar stelpur til að breytast í mellur og fara úr fötunum..

á laugardaginn á ég afmæli og í tilefni þess ætlum við að fara yfir í bæ hérna rétt hjá sem heitir Saxils og fara á ströndina þar sem er víst geggjað næs. Bryndís var að vinna þar einu sinni eitt sumar og hún segir að það sé bara mega að vera þar.
vá, ég held að það verði alveg frábært.

HEY frábærar fréttir!
ég toppaði persónulegt met í dag, hljóp 5 kílómetra á 22 mínútum.

æji afhverju geta ekki allir vinir mínir heima á íslandi flutt til danmerkur. i'm in love.

þá er ég ekki að meina in love af strák, heldur af þessu landi.
en jú ég er víst líka in love af dönskum strák. það hefur kannski smá extra áhrif.
maður getur verið svo heimskur sko... strákar eru eitur. eitur í æð og eitur í heila.

ég nenni ekki að skrifa meira ég er svo þreytt og sólbrunnin og dösuð og glöð og hamingjusöm og mylguð og úldin og falleg og búin á því. fokk ég á eftir að sofa vel!

vonandi áttu allir jafn góðan og áhyggjulausan dag og ég.
njótiði lífsins og grípiði hvert einasta andartak.

bless mellur.

dk 8

09. apríl 2008 klukkan 23:01
.. spurjiði mig hvort að ég hafi verið að gera eitthvað geðveikt fyrir viku?
Það gerði ég nefnilega. Fórum á:

Trentemøller

og það var eins og sykursæt, kynþokkafull fullnæging við hvern einasta takt. enda missti ég stjórn á mér á algjörum hápunkti kvöldsins, þegar hann spilaði útgáfu af Rykketid sem fékk mig til að hoppa upp á svið, og þegar brjálaði kaflinn kom, missti ég mig enn frekar og hoppaði frá sviðinu upp á DJ borðið hans, með þúsund manns fyrir framan mig öskrandi og hoppandi og dansandi í neongrænum og bláum leiserljósum og blikkandi brjálæði. segiði mér að ég sé kolbrjálaður geðsjúklingur, en það var fokking besta stund lífs míns.. Trentarinn var að fíla sinn brjáðasta aðdáanda. (tek einnig fram að ég var líklegast mest edrú manneskjan á svæðinu..)

trentemoller

þarna er ég, með Trentemelluna á milli lappanna að vinna sína vinnu.



á morgun fer ég til Kaupmannahafnar, Kastrup Lufthavn, að sækja foreldra mína og litlu systir mína sem er með hlaupabóluna greyjið. það verður yndislegt að hitta þau..

gott líf.

dk 8

24. mars 2008 klukkan 19:25
ef thid haldid ad lif mitt se spennandi tha, (komma a vitlausum stad) er thad thad ekki.
eg hef ekkert gert i minu paskafrii nema.. thykjast fara i ræktina, thykjast hanga upp i sofa/rumi, thykjast djamma smá og thykjast stunda kynlif med bangsa. en eg thykist bara afthvi ad hver er virkilega raunverulegur i thessu lifî? ekki eg.

eg verd ad vidurkenna ad i einmannaleika minum herna sakna eg mommu og pabba, og johonnu litlu systur minnar sem er alltaf til i ad koma ad gera eitthvad med mer. en einmannaleikinn getur verid godur, serstaklega ef madur er einmanna med godu folki.

(ég nenni stundum ad gera kommu yfir thegar vid á. stundum ekki.)

en thad var agætt ad hafa thad rolegt eftir brjalada ferdaviku, thar sem eg for til hollands og thyskalands. svo komu allir heim ....... og svo voru themadagar ....  og svo var frí. eg sendi anitu einu alvoru islensku vinkonu minni postkort fra hollandi. en framan a thvi var belja ad pissa. svoldid fyndid.

timinn flygur eins og smjor ofan a braudi og thad er ekkert sem eg get gert til ad stoppa hann. nuna er eg ad bida .... bida eftir thvi ad klukkan verdi 20:30, afthvi ad tha er eg ad fara i BodyAttack. thar sem eg mun taka flott skref og hlaupa um, gera hundrad armbeygjur og magaæfingar i takt vid tonlist og fleira mergjad. gott ad koma brennslunni i gang eftir paskaeggjaát .. nenni ekki ad tala um thetta meir.

a dofinni er ekkert.. nema nidurgangur og drulla.
eg finn mengunarlyktina nalgast..

land min og thjod.. thid megid ganga i fridi a islenskri jordu - thad fer ad styttast i komu mina.
HELMINGSTÌD TIL BAKA. sorry thetta var ógedslega danskt sagt.

dk 7

07. mars 2008 klukkan 16:56
Hold da kæft. Hvad sker der!?
Ég er barasta á leiðinni til Hollands í æfingaferð! Hvernig lýst ykkur á það? Legg af stað klukkan eitt í nótt, með rútu. Woohoo! Enn eitt rútuævintýrið. Í þetta skipti ætla ég ekki að klikka á að taka fartölvuna með!

Það er sem sagt svona "Rejseuge" (Ferðavika) í næstu viku og verður farið í fjórar mismunandi ferðir.

  • Fótboltinn fer til Hollands
  • Handboltinn fer til Þýskalands
  • Útivistar- og Ævintýralínan fer til Noregs að byggja snjóhús.
  • Dansakademían fer til Londons (og þeir sem stunda ekki neitt af þessum íþróttagreinum, þeir fara þangað líka bara sem túristar)

Við komum reyndar aðeins við í Þýskalandi á morgun og sjáum einhvern flottann fótboltaleik. Og svo förum við til Holló. Og þar gistum við á einhverju hóteli og svo verða bara tvær æfingar á dag og brjálað að gera.

Fáum svo einn heilan dag útaf fyrir okkur sem túristar í Amsterdam! Flott, ekki satt? Geggjað! Það eru langflottustu krakkarnir í skólanum sem æfa fótbolta, þannig að félagsskapurinn verður ekki af verri endanum.

Til dæmis Helle. Við ætlum nefnilega að vera Busvinkonur og herbergisfélagar á hótelinu! Það er langt síðan við ákváðum það og enn stenst það sína tönn.



Annars er allt gott að frétta bara. Ég hef það gott og ég hata það hvað tíminn líður hratt.. Langar minna en núll og nix heim til Íslands. Litla systir mín á afmæli eftir fjóra daga. Ég sendi henni gjöf, ótrúlega sætann og sumarlegan kjól og hárband.

Nennir einhver sem þekkir mig að kaupa páskaegg handa mér og senda mér? Svona Nóa Síríus? Mamma, ef þú ert að lesa.. endilega! Plögga þessu fyrir mig. Ég nenni ekki að eyða páskunum einmanna hérna í skólanum með ekkert páskaegg mér við hlið.

mm.. Það er mexíkanskur matur í matinn í kvöld. NAMM. Vona að það verði eitthvað sexy..

Bráðum verður Gensynsfest (reunion) hérna í skólanum.. GUUUUUUÐ. Det bliver HELT VILDT! Þá koma allir nemendurnir sem voru hérna á síðutu önn og fokk það verður bara svo geggjað. Þá erum við að tala um snillinga eins og hana Jógu Rafns og fleiri góða íslendinga.. 

En fokk það eru 4 mín. í mat!
Verð að þjóta.

dk 6

18. febrúar 2008 klukkan 15:07
lífið er bara Brosandi ...
og svo er það sagt!

dk 5

04. febrúar 2008 klukkan 11:53
jæja þá er ég komin heim úr bestu (og einu) skíðaferð lífs míns.
það var svo þokkalega gaman þarna í Austurríki.. vorum á skíðasvæði sem kallast Scheffau og það var bara klikkað, alveg æðislegt sko. datt ekki í hug að þetta yrði svona fallegt ferðalag og skemmtileg lífsreynsla eftir allt saman.

í lítilli diskalyftu

frábært veður eigilega allan tímann, sól og mega allaveganna 3 daga. ég er ekki frá því að maður hafi fengið smá tan í smettið. einn daginn var reyndar brjálaður stormur upp í fjalli og rigning og allt lokað og læst. einn daginn var svo gott að strákarnir renndu sér eina ferð niður berir af ofan!

atli ber að ofan

ég var alveg að fíla mig í ræmur þarna á skíðunum, þorði niður allar bröttustu brekkurnar og í púðrið og allt. ég var ekki hrædd við neitt nema kannski að deyja stundum þegar ég fór allt of hratt. missti allt control og flaug næstum því á fólkið sem beið í röðum eftir lyftu. nei djók, ég var alltaf með control á þessu og datt ekki nema kannski svona 3svar sinnum og aldrei neitt illa. einu sinni þegar ég var að fara á stökkpall hehe..

flippuð

ég var alltaf að skíða með brjáluðu liði. ef ég var ekki að skíða með brjáluðu liði fannst mér líka leiðilegt. þá var ég bara eitthvað halló, ég nenni ekki að bíða! ég vil fara hratt! ég þurfti líka að skipta um hóp í kennslu afþví að ég var sett með byrjendum! var bara eitthvað að læra að fara í plóg og eitthvað þar. halló?

halló! ég er góð!

þetta var sko alveg hjúts svæði.. maður fór upp í svona kljáf, sem er svona lokaður klefi sem fer upp eftir þykkum vír, svona eins og maður sér í bíómyndunum og þegar maður var kominn upp á topp þá gat maður farið bara óteljandi leiðir og í hundrað mismunandi lyftur um risastórt svæði sem teygðist yfir í næstu nærliggjandi bæi.

enda villtumst við einu sinni og enduðum allt í einu á einhverju lamadýra bæli einhversstaðar nálægt öðru þorpi. en það var bara fjör og þegar við loksins komumst aftur á okkar skíðasvæði aftur, þá var akkúrat ein mínúta eftir að lyfturnar lokuðu, þannig að við vorum sjúklega heppin. hefðum sko getað dáið þarna alein.

lamadýr í góðu fjöri!

eftir einn dag þarna var maður svo búinn á því. lærin voru bara "ó mæ gad lilja hvað ertu búin að gera mér?" og kálfarnir voru bara "vá hvað við erum harðir og aumir"..

svo inn á milli settumst við niður í hópum á einhvern veitingastaðinn og borðuðum og drukkum heitt kakó. gátum setið og spjallað og hlegið og kúrað og haft það huggulegt tímana saman. ohh það var svo næs.

og ég er svo öfundsjúk út í krakkana sem eru á skíðalínunni, þau eru aðra extra viku. þar á meðal er það Kristen, sem er ennþá þarna að skíða með typpið upp í loftið og punginn lafandi í skíðabuxunum. eða "skidebukserne" sem stefanía kallaði óvart.. sem hefur auðvitað ekki sömu þýðingu á dönsku!

en jæja, ég verð eigilega að fara, það er fótboltaæfing eftir 8 mínútur.
bæbæ!

du skal virkelig pas på dig selv!
komment eru vel þegin :)

dk 4

23. janúar 2008 klukkan 22:59

Helle: Er du god til at stå på ski?
Lilja: Nej, men det er rigtig sjovt synes jeg!
Sebastian: Haha.
Lilja: Hvad? Er det ikke hvad det handler om? Behöver man at være god?
Helle: Neeeej.

Lilja: Helle, hvad med dig, er du god til at stå på ski?
Helle: JA.
Lilja: OKAY! er du?
Helle: Haha Nej det er jeg ikke! Haha.. Så kigger du bara: "Er du? Det kan jeg ikke forestille mig."
Lilja: HAHA Jo det kan jeg godt forestille mig.

en já við erum sem sagt að fara í skíðaferð til austurríkis á föstudaginn!
hversu frábært er það? get reyndar ekki ímyndað mér að ferðalagið verði skemmtilegt! við þurfum nefnilega að sitja í rútu í 17 tíma. FRÁBÆRT, ekki satt?
ég er komin með busven, en það er hún stefanía. og ætlum að hafa með okkur spil, nóga af nammi, ipoda, teppi, kodda .. og þá verður þetta besta busferð lífs okkar.



í kvöld vorum við með svona keppni. mér leið eins og ég væri komin í grunnskólann aftur, lék leikrit og söng lag upp á sviði og svona ýmislegt. en það var ógeðslega gaman og mitt lið að sjálfsögðu fékk flestu stigin! djöfull er ég í góðu liði maður.

en jæja ég er orðin þreyttari en sofandi mellla.
ætla að fara að lúlla.


hugsanir snúast í hringi.
í hausnum á mér.
ég get ekki sloppið frá þeim.
þær stjórna því hver ég er.

ég ligg hér ein og hugsa.
ég vil ekki falla í svefn.
afþví að ei vil ég vakna.
án þín hér við hliðina á mér.

eru fingur mínir kaldir,
má ég koma við þig?
ég þarfnast einhvers núna.
einhvers sem að þekkir mig.

lífið er erfitt, mig verkjar.
ég sé ekki tilganginn.
en þegar ég heyri þig hlæja.
hverfur allt það sem hrjáir mig.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

sexy ..

Prófíll

  • Nafn: Lilja Minný Sigurbjörnsdóttir
  • Kennitala: 100587-2629
  • Netfang: liljaminny@hotmail.com
  • Staður: Sigló / Århus
  • Símanúmer: 8660647
  • Atvinna: Íþróttaiðkandi nemandi
  • Hjúskaparstaða: Ekkert í gangi